Allt tekur enda um síđir!
Takk fyrir mig.

Eintóm gleði,gleði og gleði!! Skólinn er skemmtilegur,hópurinn er frábær og þetta á bara eftir að verða betra
Hlakka til að takast á við verkefni vetrarins.
Ef af þessu verður þá gefur þetta 24 ein. í framhaldsnám. Aldrei að vita ef maður heldur svo eitthvað áfram. Það verða ekki tekinn nein próf heldur verða verkefnaskil metin,það finnst mér líka alveg snilld. Fögin sem kennd verða eru íslenska,enska,stærðfræði,sjálfsstyrking,tölvur,verkefnavinna og tjáning. Nú bið ég bara góða vætti um að láta nógu marga skrá sig, svo af þessu verði,þið megið líka biðja
Já kreppan hefur ekki áhrif á okkur hér í Drafnarbraut 3,það er nokkuð ljóst.Gifting og nám
Jú skólar landsins byrjaðir og hún Sara mín hóf sitt fyrsta skólaár í morgun.Fórum í viðtal í gær og hittum kennarana.Líst mjög vel á þær stöllur Þóru prestfrú og Siggu á Brimnesi. 21 barn verður í bekknum.Þau þekkjast ekki öll,enda koma frá 2 leikskólum,en þau verða fljót að kynnast.Vona þetta verði mjög samheldin hópur og engin lendi utan við.
Hér á heimilinu er allt að falla í réttar skorður,nú er ég ein heima með yngstu budduna og nýti tímann minn mjög vel svona fyrsta morguninn,hangi bara í tölvunni
Það þarf að þrífa eitthvað en..........bara nenni því ekki eins og er kannski kemur andinn yfir mig á morgun eða eitthvað!!
Elsku handboltastrákarnir eru að koma heim í dag,ætla mér að horfa á beinu útsendinguna frá þeim hátíðarhöldum.Alveg hrein unun að horfa á þessa skemmtilegu leiki með þeim á Ólympíleikunum.Ég viðurkenni það hér með að hafa fellt tár eftir spánverjaleikinn,þegar ég sá Ólaf Stef.þá bara skældi ég með honum
Hefði alveg viljað vera á staðnum og bjóða aðra öxlina mína til að þeir gætu vatnað músunum sínum
Ég hefði örugglega farið fyrst til Alexander svo til Sigfúsar,Loga,Björgvin,Róbert,Guðjón.......Já já ég læt mig bara dreyma![]()
En ég vil senda góðar kveðjur til hennar Dorrit,já hún er æðisleg!!!
Vigfús minn Þór getur alveg komið manni í gott skap það vantar ekki.Eitt nýtt gullkorn!
"Pabbi!Þegar þú verður dálítið gamall og kannski pínulítið dáin,þá get ég fengið skóna þína! " Honunm fannst vinnuskórnir pabba síns vera mjög töff,það er stáltá á þeim!![]()
Jæja þangað til næst.....